Sumarfrí!!
Það er kanski kominn tími á smá blogg...!
Loksins eru prófin búin vá hvað ég var ánægð í gær þegar ég var búin í næringarfræði prófi. Er samt skít hrædd um að falla í 3 prófum af 5 :/ vá hvað ég er þá líka ekki að fara ná neinu :/ en þá tekur marrh þetta bara aftur. En samt eini gallinn við þetta er að ég mun örugglega verða seinust af vinahópnum til að útskrifast :( það er kanski ekkert mjög sniðugt...
Aðeins útí annað eins og allir vita vann Manchester United ensku deildina sem er nottla bara geggjað!! 
Svo er sumarið að koma og vá hvað þetta verður geggjað sumar. marrh verður að vinna og með annan fótinn í fótbolta, held að eg verði að vinna eikkað á kvöldin þannig marrh getur víst ekki mætt á allar æfingar.. en það er kanski bara kominn tími á að prófa eikkað nýtt yfir sumarið. djamma og fara í ferðalög með vinum sínum.. vá hvað það verður geggjað! Fara til Akureyrar um verslunarmannahelgina og þá verður sko djammað!!
En seinustu helgi var sko tekið á því... Sjit hvað ég var full en man samt allt sem ég gerði. Sem er kanski ekkert alltof gott þar sem ég tjáði mig frekar mikið.. :/ sé smá eftir því en ég skemmti mér samt geggjað vel. Ég var eikkað inná Trix og ákvað alltí einu að labba út og þá var ný búið að vera slagur þar og löggan nottla mætt á svæðið og ég labbaði eikkað að fólkinu og þá sagði eikker gaur " keflavík er bara miklu betri staður en Njarðvík". Ég horfði bara á gaurinn og spurði hvort þeir hafi virkilega farið í slag útaf þessu og fékk auðvitað ekkert svar. En eins og ég geri best það er að tala og ég fór að segja að þetta væri nu bara einn bær og fólkið væri nu alveg eins hvort sem það væri Njarðvíkingur eða Keflvíkingur. og þá ýtti löggan mér bara í burtu svo ég yrði nu ekki barin eða eikkað :/ Svo var ég alltí einu bara komin heim. Veit ekki alveg af hverju þar sem ég var að skemmta mér bara nokkuð vel :)
Svo daginn eftir vaknaði ég alveg að deyja úr þynku, sjit hvað ég var þunn.. Eina sem ég kom oní mig var salat. hehe fór á KFC að kaupa mér salat.. mjög gaman!
Þessa dagana hef ég akkurat ekkert að gera. prófin búin. ég byrja ekki að vinna fyrr en eftir svona 1-2 vikur. :( þannig ég er bara eikkað heima að gera ekki neitt.. ekkert smá leiðinlegt....
Vá hvað ég er ekki að nenna að skrifa meira. Kanski kem ég með blogg eftir 2 vikur ef ég nenni! hehe
KV Birna Marín
Tyrkland, og djamm ;)
Nanna, Guðrún og Siggi lentu í 3 sæti í söngvakeppni framhaldsskólana eins og flestir ættu nu að vita. ;) og það er geggjað gott hjá þeim hefði viljað fara norður með þeim en ég var víst bara útí Tyrklandi.. :)
Já ég var sem sagt útí Tyrklandi og það var geggjuð ferð. vorum í eikkað 5 1/2 tima að fljúga þangað en það var ekkert lengi að líða þar sem ég og Karen Sævars skemmtum okkur geggjað vel, vorum að lita og sonna :) við lágum aðallega í sólbaði eða allar nema ég. þar sem eg fékk svo mikið sólarexem að ég varð bara að vera í peysu :/ ekki gaman. en ég lét það ekkert á mig fá og skemmti mér konunglega. Við fórum á markaðinn og já ég gat nu alveg verslað fullt, en Tyrkir eru ógeðslegir, ýkt mikið perrar. káfandi á manni og ég veit ekki hvað. Svo vorum við ýkt heppnar með veðrið, það var sól eilla allan tímann nema einn rigningardagur og svo skíjað eikkað einu sinni. Við fengum að djamm tvisvar og það var geggjað :D en varð kanski pínu full í fyrra skiptið, var komin inn um 12 leytið :/ hahaha
En já stelpur takk fyrir geggjaða ferð ;)

Ég og Justyna á fyrra djamminu ;)

Elli þjálfari komst aðeins í myndavélina :)

HAHAHAHA sjá Helenu, ýkt mikið að hugsa um hvernig skoran er ;)
Já þetta var geggjuð ferð...
Svo var Sálarball um helgina og ég skemmti mér mjög vel, var samt alltof full og gerði hluti sem marrh hefði kanski átt að sleppa!! Já og marrh var komin heim um eikkað 6 og þá komumst við systurnar að því að við vorum læstar úti :/ mamma og pabbi uppí bústað .. þannig sem betur fer var bíllinn ólæstur þannig Freydís kom sér vel fyrir í aftursætinu og sofnaði auðvitað, og lét mig sjá um allt, að finna einhvern til að koma með skrúfjárn til að opna gluggann. En ég þorði ekkert að hringja fyrr en klukkan var að verða hálf 8. Lúlli vinur mömmu kom og reddaði þessu fyrir okkur, Freydís kom sér á fáranlegan hátt inn um gluggannm hun er nottla með stóran rass og hann sat bara fastur, en hun er þrjósk eins og ég og ætlaði sér að komast inn þannig hun skrapp einhvernveginn saman og smeigði sér inn.. eins og þið kanski heyrið þá var þetta skrautlegt kvöld hjá okkur, Freydís það full að hun fór í pilsi og strigaskóm á djammið, ekkert smá töff, eða þannig!!
Ætla að segja þetta gott í bili. ;)
KV Birna Marín
Long time..
hæhæ..
vá eg er ekki að nenna að halda þessari síðu uppi en marrh reynir... kem með blogg af og til :D
Það sem hefur helst verið að gerast seinustu daga er bara skóli, æfing og læra eða eikkað annað, fer allt eftir skapi hvort marrh nennir að standa í því að læra :/
En Hljóðneminn var nuna í seinustu viku og auðvitað unnu Nanna, Guðrún og Siggi... ég missti af þeim syngja og eg var ýkt fúl, sagði við stelpurnar að þau yrðu eilla að vinna svo marrh mundi ég heyra þau syngja og í alvörunni ég hélt að ég mundi fara að gráta þegar það var sagt að þau unnu, var svo glöð og ánægð....
TIL HAMINGJU MEÐ ÞETTA.. og hlakka til að sjá ykkur í sjónvarpinu 15 apríl minni mig.

Já og hérna eru sætu börnin ;) Guðrún, Siggi og Nanna..
Hljóðnemaballið var svo síðastliðinn fimmtudag og Sigrún Bjarglind átti einmitt afmæli þá.. TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKAN ;) :* já við hittumst nokkur heima hjá henni fyrir ballið og skemmtum okkur vel að vanda, fórum í singstar og komumst að því að ég kann bara ekkert að syngja :/ tapaði alltaf. en svo héldum við af stað með rútu útí Grindavík þar sem ballið var, asnalegt að hafa það þar :O nenntu svo fáir að mæta, en ég lét mig auðvitað ekki vanta á staðinn og skemmti mér ljómandi vel, smá marin á lærinu eftir að hafa dottið í rútunni en það er bara töff.. (A)
Já svo hefur maður líka verið að keppa, var einmitt að keppa áðan við Hauka og unnum 4-0.. hefðum samt átt að vinna allavega 5-0 þar sem ég klúðraði dauða færi, það á ekki að vera hægt að klúðra svona .. :/ en mér tekst allt....... haha
En svo eru bara 3 vikur þar til marrh fer að yfirgefa kuldann og fara í hitann .. til Tyrklands vá það verður geggjað gaman. sagt að það verði á milli 25-30 stiga hiti.. en svo kemur marrh heim örugglega bara brunninn :/ hehe þar sem eg verð ekkert mikið brún.. :) en eins og einhver sagði við mig að marrh eigi að vera ánægður með sig eins og marrh er. þakka fyrir á meðan maður er heilbrigður. og að hluta til er það alveg satt. það er fólk sem á nú í meiri vandræðum en að verða ekki brúnn haha... töff að vera hvítur ekki satt Ingey ;)
já eg er að pæla í að fara bra að sofa nuna..
KV. Birna Marín ..
Jæja allt að koma ;)
Hæhæ já eg er að reyna að halda þessari síðu á lífi, eins og þið sjáið kanski þá gengur það EKKI vel. en allavega ég hef ekki tíma til að blogga eikkað nuna en hérna eru spurningar sem ég fann á netinu.. endilega svara þeim ;) | ||
Hámark letinnar.
meira seinna.
Jólafríí..!!!!!
og svo á eg að vinna á aðfangadag
En já jólin eru bara eftir viku... sjit það er alltof stutt í þau og ég er ekki komin í neitt jólaskap :o ekki sniðugt...
Og á morgun mánudag á að ná í einkunnirnar manns og það er eins gott að ég nái öllu, nenni svo ekki að taka eikkað af þessum áföngum aftur
En í gær tók ég lengsta rúnt sem ég hef farið.. var að rúnta frá 10-6 um morguninn :o með Valda, jóa og helenu en hun fór samt heim eikkað um hálf 1. sjit hvað eg var orðin þreytt en þetta var samt mjög gaman.. hehe
æji ég ætla að fara að horfa á manchester leikinn .. blogga meira fljótlega :D
KV Birna Marín...
gaman gaman..!
1. Nafn þitt:
2. Hvar kynntumst við:
3. Hvað er miðnafnið mitt:
4. Hefurðu hitt mig:
5. Hvernig þekkiru mig eða hvernig veistu hver ég er:
6. Hversu lengi hefurðu þekkt mig:
7. Hversu vel þekkiru mig:
9. Trúi ég á Guð:
10. Hvað Hugsaðiru fyrst þegar þú sást mig:
11. Aldur minn:
12. Afmælisdagurinn minn:
13. Háralitur:
14. Augnlitur:
15. Á ég systkini?
16. Hefuru nokkru sinni öfundað mig:
17. Hvað finnst mér skemmtilegast að gera:
18. Manstu eftir því fyrsta sem ég sagði við þig:
19. Hvernig tegund af tónlist hlusta ég oftast á:
20. Hver er minn besti eiginleiki:
21. Hvort er ég feimin/nn eða mannblendin/nn:
22. Er ég fyndin/nn:
23. Er ég uppreisnarseggur eða fylgi ég öllum reglum:
24. Hef ég einhverja sérstaka hæfileika:
25. Spila ég á eitthvað hljóðfæri:
26. Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað myndi það vera:
27. Höfum við kysst:
28. Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni:
29. Heldurðu að ég eigi eftir að giftast:
30. Hvernig manni/konu heldurðu að ég eigi eftir að giftast:
31. Hver er uppáhalds minning þín um eitthvað sem við höfum gert saman:
32. Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni:
33. Hvaða vin held ég mest uppá:
36. Þykir þér vænt um mig:
37. Er ég sannur vinur:
38. Elskarðu mig:
ætla svo að fara að koma með fleiri myndir inn.. svona þegar ég hef tima :)
Kv Birna
Pæling
En já það er ekkert það langt í jólin.! vá manni er eilla farið að hlakka pínu til, snjórinn kominn og svona, en hann fer örugglega á morgun :( ömurlegt
en ég fékk að keyra í gær í fyrsta sinn í snjó, og það gekk ógeðslega vel bra.! keyrði nottla dáldið hægt þar sem mamma var búin að segja að bíllinn væri á sumardekkjum en svo komst ég að því áðan að það voru heilsársdekk hehe... já ég var bara mjög stollt af mér..
Við hittumst svo nokkrir krakkar heima hjá frey í gær kvöldi.. og það er alltaf gaman að vera ein edrú..! hélt að það yrði leiðinlegra en það var bara mjög gaman fórum í pottinn í ógeðslegum kulda og snjókomu. er að vinna í því að setja myndirnar inná síðuna koma fljótlega
Svo fara helvítis prófin að koma.! sjit hvað það verður leiðinlegt læra, læra læra og læra meira. en það er líka eins gott að ná öllu nuna, aðallega enskunni sjitt hvað eg er hætt í skóla ef ég fell aftur :S
En ég er með eina pælingu, var að horfa á frægir í form áðan, tek það fram hafði ekkert að gera :S og þá kom upp eikkað að gosdrykkja hja ungu fólki væri farin að aukast og eikkað meir.. og rétt á eftir kom í auglýsingu kjúklingaborgari aðeins 350 kr .. þúst afhverju er ekki hækkað óholla matinn og lækað þann holla eins og ef manni langar í vatn og ert ekki heima hja þer, þá þarftu að kaupa þer vatn á 120 kall þust afhverju er það ekki ókeypis það er meiri hlutinn sem mundi frekar hugsa æji það er eilla hagstæðara að kaupa eina kók því það kostar bra aðeins meira og kaupa hana.! og líka ef manni langar í eitthvað hollt eins og kjúklingasalat er það bara helmingi dýrara en hamborgari... og unglingar eiga ekki endilega það mikinn pening og kaupa það sem er ódýrt..

þetta er skemmtileg pæling, eða mér finnst það allavega vona að ykkur finnist það líka. hehe :D
Svo voru eddu-verðlaunin áðan og auðvitað vann mýrin flestu verðlaunin, en eitt er mjög heimskulegt afhverju er ekki hafið þetta sjaldnar, það koma út svo fáar myndir á Íslandi að þetta er ekkert spennandi, frekar að hafa þetta kanski 5 ára fresti þá væru svo margar myndir sem kæmu til greyna. ekki bara eikkað 2-3 myndir.. en þetta er min skoðun og fjölskyldunnar, vorum einmitt að tala um þetta yfir matnum áðan :D hehe
en eg nenni ekki að hafa þetta lengra nuna, en það koma örugglega myndir bráðlega inn ..
Þangað til næst.!
Kv Birna
úff hvað marrh er duglegur..!
En það verður geggjað á laugardaginn.! lokahóf Keflavíkur sjit hvað það verður gaman.! marrh verður geggt finn og sollz eg og Ingey ætlum að skemmta okkur geggjað vel er þaggi Ingey?
En ja hérna átti að koma mynd en eg er svo rosa góð á þetta að eg bra kann það ekki
En það gerðist eitt skondið en skemmtilegt í dag í ensku tima ég og Guðrún Ara, þurftum að sitja eftir 2 stelpur bra með strákum. hehe helvítis kellingin þolir víst ekki þegar það er talað í tima. mer fannst við samt ekki tala það mikið... :)
Svo byrja æfingar á mánudaginn vá hvað mer hlakkar til, að fara að hlaupa og hreyfa mig, sparka í bolta, vá marrh hefur ekki gert það i næstum 2 mánuði
Það er bráðum að koma vetrafrí þá verður löng og góð helgi, Fjóla systir Kára kemur heim og sonna..! það er nu kominn dáldið lagur timi siðan maður sá hana...!
OG ÉG FÆ BÍLPRÓF EFTIR EIKKAÐ 11 DAGA ......!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
VÁÁÁÁÁÁ MÉR HLAKKAR TIL ...!!!!! ÞÁ VERÐUR SKO RÚNTAÐ ..! OG HUN MUNDA KJELLA ER VÍST BÚIN AÐ PANTA FYRSTA RÚNTINN..! OHHH HVAÐ ÞAÐ VERÐUR GAMAN.
hmmm .. ég hef ekkert meir að segja nuna nema að endilega að mæta á sálarballið það verður geggjað..! þúst ég og Ingey á staðnum skiluru....
en eg er að vinna í að setja inn myndir þær koma bráðlega..
KV Birna